Þrif og viðhald

Hvernig á að þrífa parketið

cleaning_500px

Lökkuð parket og trégólf

Daglega er best að þrífa með þurrþveglum eða að ryksuga. Ef ryksuga er notuð þarf að gæta þess að burstinn sé heill og óskemmdur. Öðru hverju er nauðsynlegt að þvo gólfið. Það er óhætt að bleyta parketið en varast ber að hafa tuskuna rennandi blauta , og þurrka fljótt á eftir. Gætið þess að á lakkað parket á aðeins að nota sápur sem ætlaðar eru fyrir lökkuð parketgólf Berger-Seidle Cleaner eða sambærilegt. Fáið rétta sápu í Parketverksmiðjunni Síðumúla eða sambærilegum aðila. Ekki skal nota feitar sápur sem ætlaðar eru á lútuð eða olíuborin viðargólf til að þrifa lakkað parket. Þannig sápur skilja eftir sig fituhúð á gólfinu þannig að það lítur út fyrir að vera óhreint.

Olíuborin parket og trégólf

Olíuborið parket ætti helst ekki að þvo fyrsta mánuðin eftir að það hefur verið olíuborið. Vitaskuld getur þurft að þvo fyrr en þá skal gæta þess að nota eins lítið vatn og mögulegt er og helst ekki sápu. Daglega er best að þrífa með þurrþveglum eða að ryksuga. Ef ryksuga er notuð þarf að gæta þess að burstinn sé heill og óskemmdur. Öðru hverju er nauðsynlegt að þvo gólfið. Það er óhætt að bleyta olíuborið parket eftir fyrsta mánuðinn en varast ber að hafa tuskuna rennandi blauta og þurrka fljótt á eftir. Olíuborið parket á aðeins að þvo með feitum sápum t.d. grænsápu eða sápum sem sérstaklega eru framleiddar fyrir olíuborin eða lútuð parketgólf. Gætið þess að nota aldrei sterka sápu eða hreingerningarlög á olíuborið parket. Gæta þarf þess að endurolíubera eða vaxbera olíu/vaxborin parketgólf reglulega. Hjá okkur fáið þið allt sem til þarf.

Við tryggjum gæðaparket á lægra verði

Eigin framleiðsla beint frá verksmiðju