![]()
Parketverksmiðjan ehf
Síðumúla 31, 108 Reykjavík
Símar: 581 2220 - 840 0470 - 892 5070
www.parketverksmidjan. is - upplysingar@parketverksmidjan.is
Lökkuð parket og trégólf
Daglega er best að þrífa með þurrþveglum eða að ryksuga. Ef ryksuga er
notuð þarf að gæta þess að burstinn sé heill og óskemmdur. Öðru hverju
er nauðsynlegt að þvo gólfið. Það er óhætt að bleyta parketið en varast
ber að hafa tuskuna rennandi blauta , og þurrka fljótt á eftir. Gætið þess
að á lakkað parket á aðeins að nota sápur sem ætlaðar eru fyrir lökkuð parketgólf
Berger-Seidle Cleaner eða sambærilegt. Fáið rétta sápu hjá parketmanninum.
Ekki skal nota feitar sápur sem ætlaðar eru á lútuð eða olíuborin viðargólf
til að þrifa lakkað parket. Þannig sápur skilja eftir sig fituhúð á gólfinu þannig
að það lítur út fyrir að vera óhreint.
Olíuborin parket og trégólf
Olíuborið parket ætti helst ekki að þvo fyrsta mánuðin
eftir að það hefur verið olíuborið. Vitaskuld
getur þurft að þvo fyrr en þá skal gæta þess
að nota eins lítið vatn og mögulegt er og helst ekki
sápu. Daglega
er best að þrífa með þurrþveglum eða að ryksuga. Ef ryksuga er notuð þarf
að gæta þess að burstinn sé heill og óskemmdur. Öðru hverju er nauðsynlegt
að þvo gólfið. Það er óhætt að bleyta olíuborið parket eftir
fyrsta mánuðinn en varast ber að hafa tuskuna rennandi blauta
og þurrka fljótt á eftir. Olíuborið parket á aðeins
að þvo með feitum sápum t.d. grænsápu
eða sápum sem sérstaklega eru framleiddar fyrir olíuborin
eða lútuð parketgólf. Gætið þess
að nota aldrei sterka sápu eða hreingerningarlög á olíuborð parket.
Gæta þarf þess að endurolíubera eða vaxbera olíu/vaxborin parketgólf. Hjá
okkur fáið þið allt sem til þarf.