Parketverksmiðjan ehf
Síðumúla 31, 108 Reykjavík
Símar: 581 2220 - 840 0470 - 892 5070
www.parketverksmidjan. is - upplysingar@parketverksmidjan.is

line
line
PV logo

Plankagólf lögð á bita (lektur).

Ef lagt er á lektur skulu lekturnar vera minnst 50 x 60 mm úr valinni þurrkaðri furu. Ef lekturnar geta ekki verið í einu lagi skulu samskeytin vera löskuð á báðum hliðum og límd saman. Fjarlægð á milli bita skal ekki vera meira en 60 cm í íbúðarhúsnæði en 40 cm eða minna í atvinnuhúsnæði. Lekturnar eru síðan stilltar í hæð með fleygum sem bæði límast og neglast. Ef lagt er á bita getur þurft að hefla niður hæðir eða bæta á til að jafna hæð bitanna. Hæðarmunur má ekki vera meiri en 2 mm á 2 metrum. Plankarnir eru síðan skúfaðir með Monta-flex skrúfum t.d. 4,2 x 50 - 70 mm eða sambærilegum. Skrúfa skal í hverja lektu/bita. Gæta skal þess að aldrei séu endasamskeyti hlið við hlið í sama lektu/bita bili. Aldrei má líma plankana saman í nót og tappa. Mikilvægt er að bitar/lektur hafi sama rakastig og plankarnir. Leggja skal rakasperru ofan á bitana og undir gólfið (þolplast 0,20).

 

 

 

Lögn á gamalt trégólf.

Ef ætlunin er að leggja planka á trégólf sem fyrir er skal leggja plankana þvert á stefnu gólfsins sem fyrir er. Ef það er af einhverjum orsökum æskilegt að nýja gólfið hafi sömu stefnu og það gamla skal leggja 12 mm krossvið ofan á gamla gólfið og skrúfa niður. Millibil á milli skrúfa skal ekki vera minna en 40 cm. Að sjálfsögðu skal gæta þess að ekki séu mishæðir á undirgólfinu sem eru yfir 2 mm á 2 metrum. Plankarnir eru síðan skrúfaðir á sama hátt og ef um lögn á lektur/bita væri að ræða. Fylgið leiðbeiningunum hér að neðan hvar byrja skal lögnina. Ef gólfið er breiðara en 4 metrar skal byrja eins og að neðan er sýnt. Ef gólfið er mjórra má byrja við annan vegginn og leggja allt gólfið í sömu átt.

 

 

Áður en parketið er lagt
Aðalatriðið er að rakinn í viðnum passi við rakastigið í húsinu þar sem á að leggja gólfið. Parketið okkar eru þurrkað í 8,5% + - 1,5% það samsvarar u.þ.b. 42% loftraka. Mikilvægast er því að vera viss um að allar aðstæður á staðnum sem leggja á gólfið séu eins og best verður á kosið. Þvi er nauðsynlegt að eftirarandi atriði séu í lagi. Áður en gólfið er lagt er nauðsynlegt að húsið hafi verið upphitað með jöfnum hita 20 - 22° í a.m.k. 6 vikur. Einnig að öllu múrverki og steypuvinnu hafi verið lokið fyrir þann tíma, frágangur glugga og hurða sé endanlegur og loftrakinn sé að meðaltali milli 40 og 50%. Ef líma á gólfið niður á steypu eða flot þarf að vera viss um að allur raki sé horfinn úr undirgólfinu. Algengt er að það taki 8 - 12 mánuði fyrir steypt gólf að fullþorna. Ef vafi leikur á því hvort steypan/flotið sé full þurrt skal láta rakamæla gólfið. Ekki er hægt að treysta venjulegum viðnáms rakamæli í öllum tilfellum t.d. þegar mæla á Anhydrid flotefni. Því er best að láta RB (Rannsóknarstofnun byggingariðnaðarins) eða sambærilegan aðila rakamæla gólfið. Hægt er að grunna gólfin með rakasperrugrunni þannig að óhætt sé að leggja gólfið á steypu eða flot sem ekki er orðið full þurrt. Farið þá eftir fyrirmælum framleiðanda rakasperrunnar. Ef ætlunin er að leggja parketið/plankana á gólfbita eða krossvið/spónaplötur er best að nota þolplast sem rakasperru undir gólfið. Við mælum með því að nota einnig rakasperru (poly-ureþan eða epoxy) á steypt gólf þó að þau séu orðin þurr. Það minkar hættuna á hreyfing í viðnum. Það er einnig mikilvægt að undirgólfið sé slétt. Til að mæla hvort gólfið er nógu slétt skal leggja 2 metra réttskeið á gólfið, það á ekki að vera meira en 1,5 mm hæðarmunur á 2 metrum. Ef munurinn er meiri þarf að flota eða fræsa niður hryggi. Ef líma skal niður er ekki síður mikilvægt að yfirborðið á steypunni sé sterkt. Best er að gera prufur með því að líma niður búta af plönkum/parketi á nokkurum stöðum á gólfinu, láta harðna yfir nótt og rífa síðan upp. Það á að vera mjög erfitt að ná bútunum upp og ef límingin er góð kemur hluti af pússningunni/flotinu með. Mikilvægt er að límið sem notað er sé ætlað til að líma gegnheilt parket/plankagólf. Fáið umsögn frameiðanda/seljanda. Notið aldrei lím sem inniheldur vatn. Alltaf skal vera a.m.k. 15 mm bil við alla veggi, súlur eða aðrar fastar hindranir. Þetta gildir um öll trégólf. Sé gólfið breiðara en 8 metrar skal mynda þenslurauf sem er a.m.k. 1 mm fyrir hvern metra gólfs.

 

 

 

Samanburðartafla


Skoða eftirfarandi tengla: Lögn á parketi í fiskabeinsmunstur - Lögn á plönkum á grind